Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 17. júlí 2022 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Warnock við Spence: Þú gætir endað í Bromley eða úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Djed Spence er við það að ganga til liðs við Tottenham.

Þessi 21 árs gamli hægri bakvörður var á láni hjá Nottingham Forest frá Middlesbrough á síðasta tímabili. Middlesborugh var spáð upp úr Championship deildinni en ekki Forest.

Svo fór að Forest fór upp en ekki Middlesbrough.

Neil Warnock var stjórinn sem lánaði Spence en hann segir að leikmaðurinn hafi átt við viðhorfsvandamál að stríða.

Hann sagði við hann áður en hann fór á lán að hann hefði gott að því.

„Þú gætir endað hjá Bromley eða í úrvalsdeildinni," sagði Warnock við hann. Warnock vissi alltaf af hæfileikunum en það var spurning um hugarfar. Hann er að minnsta kosti á leið í úrvalsdeildina.

Bromley leikur í utandeildinni á Englandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner