Fotbolti.net
17.07.23 - 22:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Geggjuð tilfinning að snúa aftur - „Rosa skrítið að spila á móti þessum gæjum"

Auglýsing
Var lengi hjá Val.

Var lengi hjá Val.

Canon

Mynd: Hulda Margrét

„Það er æðisleg tilfinning, búinn að vera ótrúlega langur tími og tilfinningin er alveg geggjuð," sagði Andri Adolphsson sem lék í kvöld sinn þriðja leik eftir erfið meiðsli.

Andri meiddist illa á undirbúningstímabilinu fyrir síðasta tímabil og spilaði ekki leik í rúmlega 16 mánuði.

„Það er rosa öðruvísi, rosa skrítið að spila á móti þessum gæjum. Þetta eru allt frábærir fótboltamenn, rosalega erfitt en ógeðslega gaman líka," sagði Andri um að mæta Val þar sem hann hafði verið síðan 2015 áður en hann skipti yfir í Stjörnuna í vetur.
„Þeir gera það, þetta var erfitt, við þurftum að vera þéttir og menn gerðu sína vinnu. Við náðum að klára þetta sem er frábært."

„Algjörlega, okkur finnst við vera á góðu skriði og við náðum að halda því áfram í dag."

„Ég er að fíla mig rosalega vel í Stjörnunni, ógeðslega góðir fótboltamenn hérna og mjög skemmtileg dýnamík í þessum hóp, margir ungir gæjar sem eru ógeðslega góðir. Það er bara mjög gaman,"
sagði Andri.

Viðtalið við hann má sjá í spilaranum efst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.