Fotbolti.net
17.08.19 - 19:55
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino: Ég er ástfanginn af VAR

Pochettino: Ég er ástfanginn af VAR
Canon

Mynd: Getty Images

Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var kátur eftir 2-2 jafntefli gegn Manchester City í dag.
Tottenham skoraði með báðum skotum sínum sem fóru á rammann á meðan Man City átti 30 marktilraunir.

„Ég er ástfanginn af VAR. Ég var ekki sammála því í fyrstu en stundum hjálpar það manni eins og í dag eða í Meistaradeildinni," sagði Pochettino brosandi að leikslokum.

„Ég gagnrýndi VAR í fyrstu en nú þurfum við að samþykkja þessa tækni. Ég efast ekki um að við munum fá ákvörðun á móti okkur í framtíðinni.

„Við getum ekki stöðvað framþróun tækninnar en þetta er erfitt því við erum enn ástfangin af því hvernig fótboltinn var fyrir 30 árum þegar dómarinn fór með öll völd. Þá gerðust ósanngjarnir hlutir en yfir heilt tímabil jafnast allt út."


Pochettino er afar sáttur að sleppa með stig af Etihad leikvanginum og segir að sínir menn þurfi að bæta sig fyrir næstu leiki.

„Ég er mjög ánægður með stigið en veit vel að við þurfum að bæta okkur á öllum sviðum. Við þurfum smá tíma til þess og erum að vinna hörðum höndum að umbótum."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.