17.08.20 - 21:16
Brynjar Ingi Erluson
David Silva til Real Sociedad (Staðfest)

David Silva er farinn til Sociedad

Mynd: Getty Images

David Silva er farinn til Sociedad

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Sociedad hefur gengið frá samningum við spænska sóknartengiliðinn David Silva en hann semur til 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spænsku deildinni í kvöld.
Þessi 34 ára gamli leikmaður rann út á samning hjá Manchester City á dögunum en hann hafði spilað með félaginu í áratug. Hann var afar mikilvægur hluti af uppbyggingu félagsins sem er í dag í fremstu röð á Englandi.
Silva hefur undanfarnar vikur verið í viðræðum við ítalska félagið Lazio og var gert ráðið fyrir því að hann væri á leið þangað og eru þessar fréttir því afar óvæntar. Ciro Immobile, framherji Lazio, greindi meðal annars frá því á dögunum að hann væri spenntur fyrir því að spila með Silva.
Hann er genginn í raðir Real Sociedad. Hann var búinn að komast að samkomulagi við Lazio um að gera þriggja ára samning og átti hann aðeins eftir að fara í læknisskoðun.
Sociedad kom inn í myndina á síðustu stundu og stal honum frá Lazio en Sociedad missti Martin Ödegaard aftur til Real Madrid á dögunum og var því þörf á að fá inn sóknartengilið.

OFFICIAL: @RealSociedadEN confirm the signing of David Silva. ✍️
— LaLiga English (@LaLigaEN) August 17, 2020
Welcome back to #LaLigaSantander, @21LVA! 👋 pic.twitter.com/kaBthIfKPm