17.08.20 - 14:39
Elvar Geir Magnússon
Stytta af David Silva reist fyrir utan heimavöll Man City

David Silva.

Mynd: Getty Images

David Silva.

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur staðfest að stytta af David Silva muni verða reist fyrir utan heimavöll félagsins, Etihad leikvanginn. Styttan á að vera orðin tilbúin á næsta ári.
Þessi magnaði miðjumaður er að kveðja City eftir tíu ár hjá félaginu.
Þá ætlar City að vera með æfingavöll með mósaíkmynd sem er tileinkuð Silva.
Þessi magnaði miðjumaður er að kveðja City eftir tíu ár hjá félaginu.
Þá ætlar City að vera með æfingavöll með mósaíkmynd sem er tileinkuð Silva.
Silva er 34 ára en Spánverjinn er ekki að leggja skóna á hilluna, hann mun ganga í raðir Lazio að öllum líkindum.
Hjá City varð hann fjórum sinnum Englandsmeistari, tvívegis bikarmeistari og fimm sinnum deildabikarmeistari.
Hjá City varð hann fjórum sinnum Englandsmeistari, tvívegis bikarmeistari og fimm sinnum deildabikarmeistari.
