Guðni Þór: Virkilega öflug deild

Guðni Þór, þjálfari HK

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Þór, þjálfari HK

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara ótrúlega ánægður, mér er bara létt að klára leikinn. Við mættum hérna virkilega vel skipulögðu og öflugu KR liði sem að var augljóslega náttúrulega að berjast fyrir sínu lífi í deildinni. Þær voru vel skipulagðar voru hungraðar og hentu sér í hverjar einustu tæklingu og gerðu okkur bara virkilega erfitt. Þannig að standa uppi sem sigurvegari í dag er bara virkilega gott.” Þetta sagði Guðni, þjálfari HK eftir 3-2 sigur á KR í kvöld.
Spilaðist leikurinn eftir leikplaninu ykkar?: „Jájá, hann gerði það. Fáum á okkur mark snemma leiks og það kemur smá óöryggi í okkur eftir markið. Við töluðum saman vel í hálfleik og gerðum smá áherslubreytingar. Við ákváðum ýta bara liðinu hærra upp, bara fjölga í sókninni, og mér fannst það alveg skila sér.”
HK hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum en voru hins vegar undir þegar liðin gengu til búningsherbergja. Var svekkjandi að ná ekki að skora í fyrri hálfleik?: „Já auðvitað er það svekkjandi. Við þurfum einhvern veginn alltaf extra mörg færi til að skora en við skorum þrjú mörk í dag, mjög góð mörk sem við skorum, þau hefðu getað verið fleiri.”
„KR liðið varðist ótrúlega vel líka, þær voru þéttar og skipulagðar og það er erfitt að brjóta svona lið á bak aftur.”
Nú eru þrjár umferðir eftir af deildinni en hvernig leggst þessi lokasprettur í HK? „Bara eins og sumarið er búið að vera, bara hnífjafnt. Mikil barátta, mikil gæði, virkilega öflug deild. Þrír leikir eftir og við gefum allt í sölurnar og klárum þetta á fullu.”
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan




