Fotbolti.net
17.08.26 - 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Haukur Andri spáir í 19. umferð Lengjudeildarinnar

Haukur Andri Haraldsson.

Haukur Andri Haraldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er heil umferð í Lengjudeild karla í kvöld. Skagamaðurinn Haukur Andri Haraldsson tók að sér það verkefni að spá í leikina sem eru framundan.
Skoraði magnað mark í Eyjum - „Síðan bara tók ég á rás, held ég hafi sólað þrjá og setti hann í þaknetið"
TENGT EFNI

Skoraði magnað mark í Eyjum - „Síðan bara tók ég á rás, held ég hafi sólað þrjá og setti hann í þaknetið"

Grindavík 2 - 1 Grótta (18:00 í kvöld)
Þessi verður ekki mikið fyrir augað. Grasið í Grindavík er erfitt, þannig að bæði lið munu fara þessa kölluðu leið eitt og Grindavík vinnur þann slag. Ingi Sig fer á kostum í þessum leik. Hann skorar fyrir utan teig þar sem hann tekur fake shot yfir á vinstri, skýtur í varnarmann og í netið. Ingi verður óheppinn að skora ekki þrennu þar sem tréverkið mun stríða honum. Björgvin Brimi, Benó Breki 2.0, jafnar leikinn eftir skyndisókn. Grindavík tekur þetta í lokin. Ingi tekur hornspyrnu, beint á pönnuna á Damir sem tryggir stigin þrjú. Damir gleymir að hann sé á gulu og fer úr treyjunni og nælir sér í rautt kort til að toppa sinn leik.

ÍR 0 - 2 Njarðvík (18:00 í kvöld)
Þessi leikur verður einnig spilaður mikið af þessari leið eitt. Bæði lið eru á ágætu skriði en Njarðvík er með betra lið og hefur þennan. ÍR mun byrja leikinn betur og Davíð Smára líst ekkert á blikuna. Hann gírar sína menn rækilega í hálfleik og þeir koma út og skora strax eftir 10 sekúndur. Oumar Diouck pressar miðjuna sem ÍR á, stelur boltanum, kemst í gegn og klobbar markmanninn. Stefán Gísli skorar svo eftir misheppnaða fyrirgjöf og Ómar Björn missir sig og hleypur inn á völlinn til að fagna með litla bróður sínum.

Leiknir R. 2 - 1 Ægir (18:00 í kvöld)
Ægismenn mæta í Breiðholtið og munu eiga góðan leik en fara heim með sárt ennið. Þeir skora snemma og eru yfir í 86 mínútur. Leiknismenn verða með lélegar fyrirgjafir allan leikinn þangað til að Arnór Valur neglir boltanum fyrir þar sem tískulöggan BBB mætir eins og eimreið og skallar hann í vinkilinn. BBB er ekki hættur. Hann fær 1v1-einvígi vinstra megin þar sem hann Ronaldo-choppar yfir á hægri og leggur hann snyrtilega í fjærhornið. Daginn eftir mætir hann svo í trylltum klæðnaði og verður númer eitt lesið á mbl.

Völsungur 1 - 1 Vestri (18:00 í kvöld)
Dómarinn verður í aðalhlutverki í þessum leik. Mikið af brotum og spjöldum líta dagsins ljós og lítið flæði verður í leiknum. Bæði lið skora eftir vítaspyrnu. Breki Þór neglir á mitt markið og skorar. Marvin Darri mun verja vítið hinum megin en því miður fær Völsungur frákastið og jafnar.

Afturelding 3 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Mörg augu ættu að vera á þessum leik. Bæði lið eru að ganga vel og boltinn verður ekki mikið í loftinu. HK mun eiga fyrri hálfleikinn og komast í 0-2. Tumi Thorvars hleypur inn fyrir vörnina eins og hann gerir best og vippar yfir Arnar Daða. 0-2 er staðan í hálfleik. Afturelding setur svo í gírinn í seinni og byrjar með marki frá öðrum BBB, Bjarta Bjarma. Axel Óskar skorar ekki með skalla heldur eftir aukaspyrnu af stuttu færi þar sem hann neglir í markmannshornið. Afturelding hendir öllu fram í lokin og það verður darraðadans inni í teignum og Kiddi Freyr skorar og fer og fagnar með Kristjáni Hjörvari. Kristján Hjörvar gefur svo Kidda skeið af Hreysti og Lean Body og tekur hann með sér að grinda í ræktinni.

Þróttur R. 1 - 3 Fylkir (19:15 í kvöld)
Fyrri hálfleikur verður eins og að þrípútta fyrir pari, hundleiðinlegur. Bara ekkert að gerast. Þróttur meira með boltann en ekki að skapa sér neitt. Seinni hálfleikur verður eins og að fá sér ískalt Pepsi Max um kvöldið, þvæla. Guðfinnur Þór vinnur tvö einvígi í röð á miðjunni og þræðir Gumma Tyrfings í gegn sem er óeigingjarn og rennir honum á Wöhler-vélina sem sleppir því að fagna. Fylkir fær svo víti þar sem Wöhler-vélin sýnir auðmýkt sína og gefur Gumma Tyrfings vítið og hann skorar. Þróttur minnkar muninn og herjar á Fylki síðasta korterið en Fylkir skorar svo eftir horn þegar Hlynur Sævar mætir eins og gammur á fjær. Hlynur segir síðan við Theódór Inga eftir leik að hann sé fölur og eigi að „smell it“.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ágúst Hlynsson (3 réttir)
Jón Gísli Eyland (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Eiður Gauti (2 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Ásgeir Orri (1 réttur)
Eiður Orri (?)
Ingi Þór Sigurðsson.

Ingi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tískulöggan BBB.

Tískulöggan BBB.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fáum við mark frá Axeli?

Fáum við mark frá Axeli?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gummi Tyrfings.

Gummi Tyrfings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+2235
2Þróttur R.18+1934
3Fylkir18+934
4Njarðvík18+832
5HK18+931
6Grótta17+126
7Vestri18-924
8Leiknir R.18-322
9Grindavík18-620
10ÍR18-919
11Völsungur18-1417
12Ægir18-278
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.