Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 17. september 2020 10:36
Magnús Már Einarsson
Arsenal nær samkomulagi um kaup á Rúnari - Læknisskoðun í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arsenal hefur náð samkomulagi við Dijon um kaup á markverðinum Rúnari Alex Rúnarssyni en kaupverðið hljóðar upp á 1,3 milljón punda. RMC í Frakklandi segir frá þessu.

Rúnar fer í læknisskoðun í Frakklandi í dag en hún fer fram í tveimur hlutum.

Rúnar byrjar í læknisskoðun í Dijon og fer síðan í nánari skoðanir í París.

Arsenal seldi í vikunni markvörðinn Emiliano Martinez til Aston Villa á tuttugu milljónir punda en Rúnar Alex á að fylla hans skarð.

Matt Macey var varamarkvörður Arsenal gegn Fulham um síðustu helgi en hann er sagður vera að íhuga framtíð sína hjá félaginu.

Ef Rúnar Alex klárar félagaskiptin fyrir hádegi á morgun gæti hann verið í leikmannahópi Arsenal gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Hinn 25 ára gamli Rúnar Alex hefur verið á mála hjá Dijon undanfarin tvö tímabil en hann lék áður með Nordsjælland í Danmörku. Hjá Nordsjælland var markmannsþjálfari hans Inaki Cana sem er í dag markmannsþjálfari Arsenal.

Sjá einnig:
„Topp fimm félagaskipti hjá íslenskum leikmanni í sögunni"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner