Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. september 2022 13:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Wolves og Man City: Grealish bestur
Mynd: Getty Images
Wolves tapaði 3-0 gegn Manchester City á heimavelli en Jack Grealish, Erling Haaland og Phil Foden skoruðu mörkin.

Jack Grealish hefur fengið mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína með City síðan hann gekk til liðs við félagsins frá Aston Villa á síðasta ári.

Hann svaraði gagnrýnisröddum í dag og Sky Sports valdi hann mann leiksins og fékk 9 í einkunn. Kevin de Bruyne fékk einnig 9. Haaland, Foden og Bernardo Silva fengu 8.

Jose Sa markvörður Wolves fékk fjóra og Nathan Collins fékk tvo en hann spilaði aðeins rúman hálftíma þar sem hann fékk rautt spjald fyrir glórulaust brot á Grealish.

Wolves: Sa (4); Jonny (5), Collins (2), Kilman (6), Ait-Nouri (6); Nunes (6), Neves (6), Moutinho (5); Neto (5), Guedes (6), Podence (5).

Varamenn: B Traore (6), Hwang (6), Semedo (6), Campbell (n/a).

Man City: Ederson (6); Stones (7), Dias (7), Akanji (7), Cancelo (7); Rodri (7), De Bruyne (9), Bernardo (8); Foden (8), Haaland (8), Grealish (9).

Varamenn: Gundogan (6), Mahrez (6), Alvarez (6), Palmer (6), Gomez (6).

Maður leiksins: Jack Grealish


Athugasemdir
banner