Fotbolti.net
17.09.26 - 22:43
Snæbjört Pálsdóttir

Var í Þróttaratreyjunni þegar bikarnum var lyft - skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir Blika

Auglýsing
Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik í 4–1 sigrinum á Grindavík/Njarðvík.

Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik í 4–1 sigrinum á Grindavík/Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Þórdís Elva Ágústsdóttir opnaði markareikning sinn fyrir Breiðablik þegar liðið vann 4–1 sigur á Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í kvöld.

Þórdís skoraði fjórða mark Breiðabliks í leiknum og þar með sitt fyrsta fyrir félagið.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 1 Grindavík/Njarðvík

„Bara mjög góðar. Bara gott að vinna leikinn og gaman að fá loksins fyrsta markið í grænu,“ sagði Þórdís um tilfinninguna eftir leik.

„Ég reyndi að vera róleg þarna og tók aukasnertingu. Ég lagði hann þannig ég ætlaði ekki að fara að klúðra þessu.“


Þórdís gekk til liðs við Blika frá Þrótti í félagaskiptaglugganum í sumar og hefur á skömmum tíma fengið að upplifa stóra leiki bæði hér heima og í Evrópu. Hún segir að aðlögunin að nýja liðinu hafi gengið afar vel.

„Það er bara búið að vera mjög gaman og mjög þægilegt finnst mér. Hópurinn tók mig mjög vel og ég fór bara beint inn í hlutina hérna. Mér fannst það bara smella strax og kom bara svona náttúrulega til mín. Þannig þetta er bara búið að vera geggjað og verður það áfram.“


Fyrrum liðsfélagar Þórdísar í Þrótti fögnuðu bikarmeistaratitlinum um síðustu helgi og Þórdís var sjálf á meðal áhorfenda.

„Ég var uppi í stúku í Þróttaratreyju með mínum konum. Þetta var geggjað og samgleðst þeim ógeðslega mikið og þær áttu þetta rosalega mikið skilið.“


Næsta verkefni Breiðabliks er í Evrópukeppni og Þórdís hefur þegar fengið að upplifa töluvert af Evrópuævintýrinu eftir félagaskiptin.

„Það er bara búið að vera ævintýri. Við erum búin að fara í skrautleg ferðalög og það er alltaf bara gaman og við gerðum það besta úr þessu alltaf. Þetta eru ógeðslega skemmtilegir leikir að spila. Þetta er allt öðruvísi að spila í deildinni.“

„Við erum í rauninni ekkert búin að vita neitt mikið farandi inn í þessi verkefni. En það er bara búið að ganga vel þannig að ég held bara við höldum því áfram.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.