Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. október 2020 14:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skotland: Lærisveinar Gerrard unnu sinn annan sigur á Celtic í röð
Mynd: Getty Images
Celtic 0 - 2 Rangers
0-1 Connor Goldson ('9)
0-2 Connor Goldson ('54)

Rangers vann sigur á Celtic í risaslagnum í skoska boltanum. Liðin mættust á Celtic Park í dag.

Rangers vann einnig í síðasta deildarleik liðanna og hefur því unnið tvo leiki í röð í fyrsta sinn í lengri tíma.

Connor Goldson skoraði bæði mörk gestanna í dag. Það vekur athygli að Celtic náði ekki skoti á mark gestanna.

Rangers er á toppi deildarinnnar með fjögurra stiga forskot á Celtic sem á leik til góða. Neil Lennon er stjóri Celtic og Steven Gerrard er stjóri Rangers.
Athugasemdir
banner
banner
banner