Enska B-deildarfélagið Stoke City samdi við Angus Gunn, markvörð Southampton, undir lok gluggans í gær en þetta staðfesti Stoke á heimasíðu sinni.
Stoke seldi Jack Butland til Crystal Palace í gær fyrir 1 milljón pund og þurfti því á markverði að halda í hans stað.
Félagið fór í viðræður við Southampton um að fá Angus Gunn á láni út tímabilið og gekk það eftir.
Gunn er 24 ára gamall og hefur spilað 30 leiki fyrir Southampton en hann spilaði tíu leiki á síðustu leiktíð.
Southampton er með Alex McCarthy og Fraser Forster og leyfði því Gunn að fara á lán í Stoke.
Athugasemdir