Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 17. október 2020 18:33
Victor Pálsson
Þýskaland: Bayern í engum vandræðum
Mynd: Getty Images
Arminia Bielefeld 1 - 4 Bayern Munchen
0-1 Thomas Muller('8)
0-2 Robert Lewandowski('26)
0-3 Robert Lewandowski('51)
0-4 Thomas Muller('51)
1-4 Ritsu Doan('58)

Bayern Munchen vann sannfærandi sigur í þýsku Bundesligunni í dag er liðið heimsótti Arminia Bielefeld í fjórðu umferð deildarinnar.

Bayern byrjaði tímabilið á sigri og tapi en í annarri umferð fékk liðið skell frá Hoffenheim og tapaði 4-1 á útivelli.

Meistararnir svöruðu þó vel í kjölfarið með sigri á Hertha Berlin og héldu áfram á sigurbraut í dag.

Thomas Muller og Robert Lewandowski voru sjóðandi heitir í dag og skoruðu báðir tvö mörk í 4-1 sigri.

Báðir leikmenn áttu einnig sitt hvora stoðsendinguna en Bayern var með 4-0 forystu þegar 51 mínúta var komin á klukkuna.

Heimamenn löguðu stöðuna með marki Ritsu Doan á 58. mínútu en lengra komust þeir ekki og öruggur sigur Bayern staðreynd.

Áður en flautað var til leiksloka þá fékk Corentin Tolisso þó beint rautt spjald hjá Bayern fyrir brot á 76. mínútu.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner