Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mán 17. október 2022 12:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Greenwood búinn að breytast mikið - Mætti fyrir dóm í fyrsta sinn
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltamaðurinn Mason Greenwood mætti í dómsal í dag í fyrsta sinn eftir að hann var ákærður um helgina.

Greenwood er ákærður fyrir fyrir tilraun til nauðgunar, fyrir ofbeldisfulla hegðun og fyrir að hafa ráðist á fyrrum kærustu sína, Harriet Robson. Hún tók upp myndbönd og myndir af Greenwood sem fóru á netið í janúar mánuði á þessu ári.

Hinn 21 árs gamli Greenwood mætti fyrir rétt í dag. Hann talaði aðeins til að staðfesta nafn sitt, fæðingardag og heimilisfang.

Greenwood mætti í fangelsisbíl í dómsal, en hann var klæddur í Nike jogginggalla og hvítan stuttermabol. Útlit hans hefur breyst mikið frá því hann sást síðast opinberlega en hann hefur látið hár sitt vaxa og er með yfirvaraskegg.

Greenwood, sem þótti einn efnilegasti fótboltamaður í heimi, hefur ekki spilað fótbolta í um tíu mánuði - frá því málið kom upp. Félag hans, Manchester United, setti hann til hliðar um leið og málið kom upp.

Réttarhöld í málinu koma til með að halda áfram á næstunni.

Sjá einnig:
Greenwood handtekinn á ný - Grunaður um að hafa haft samband við fórnarlambið


Athugasemdir
banner
banner
banner