Miðverðirnir, Morten Ohlsen Hansen og Gustav Kjeldsen, hafa framlengt samninga sína við Vestra til næstu tveggja ára, en félagið greindi frá þessu í gær.
Kjeldsen og Ohlsen spiluðu báðir 24 leiki í sumar er Vestri tryggði sæti sitt í Bestu deild karla.
Kjeldsen, sem er 24 ára gamall, kom til félagsins frá HB í Færeyjum, en Ohlsen Hansen frá Kórdrengjum þar sem Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var áður við störf.
Þeir tveir áttu frábært suma með Vestra og kórónuðu það með því að fara upp með liðið
Báðir hafa skrifað undir tveggja ára samninga við félagið og verða þeir því báðir með í Bestu deildar ævintýrinu á næsta ári.
?????Morten Ohlsen Hansen og Gustav Kjeldsen framlengja.
— Vestri - Fótbolti (@VestriF) October 16, 2023
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að miðvarðarparið öfluga hefur skrifað undir nýja tveggja ára samninga. pic.twitter.com/VbmckxcMHU
Athugasemdir