Eins og við fjölluðum um í gær þá kvartaði landsliðsþjálfari Moldóvu yfir áhugaleysi þjóðarinnar á landsliðinu. Það ákall hefur einhverju skilað.
Forsetinn Igor Dodon og forsætisráðherrann Ion Chicu, sem tók við embætti í síðustu viku, eru báðir mættir á völlinn en Moldóva og Ísland mætast eftir nokkrar mínútur.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Það er vinsælt hjá forsetunum að skella sér á völlinn en Erdogan Tyrklandsforseti var í heiðursstúkunni þegar Ísland gerði jafntefli við Tyrkland í Istanbúl á fimmtudag.
Athugasemdir