Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fim 17. desember 2020 20:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kai Rooney skrifar undir hjá Manchester United (Staðfest)
Mynd: Wayne Rooney - Facebook
Hinn ellefu ára gamli Kai Wayne Rooney er búinn að skrifa undir samning hjá Manchester United.

Kai er elsti sonur Wayne Rooney sem er goðsögn hjá félaginu og sá markahæsti í sögu félagsins. Wayne og Coleen eiga saman fjóra stráka.

Mikið hefur verið látið með Kai en strax í fyrra var byrjuð umræða í breskum fjölmiðlum að Kai myndi fljótlega skrifa undir í Manchester.

„Merkilegur dagur. Kai skrifar undir hjá Manchester United. Haltu áfram að standa þig sonur," stendur við myndina sem birtist á Facebook-síðu Wayne Rooney í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner