Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 18. janúar 2021 10:04
Magnús Már Einarsson
Chelsea ætlar að reyna við Haaland í sumar
Mynd: Getty Images
The Athletic greinir frá því í dag að Chelsea ætli að reyna að kaupa Erling Braut Haaland í sínar raðir frá Borussia Dortmund í sumar.

Chelsea vill fá öflugan framherja og Haaland er leikmaðurinn sem félagið vill fá.

Hinn tvítugi Haaland hefur skorað 35 mörk í jafnmörgum leikjum síðan hann kom til Dortund frá RB Salzburg fyrir ári síðan.

Sumarið 2022 opnast klásúla í samningi Haaland um að hann megi fara á 66,6 milljónir punda.

Fleiri félög eru með Haaland á óskalista sínum en hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United, Manchester City og Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner