Þýska stórliðið Bayern Munchen hefur keypt landsliðskonuna Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur frá Breiðabliki. Karólína er búin að fá félagaskipti til Þýskalands.
Bayern Munchen er á toppnum í þýsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla tólf leiki sína á tímabilinu og er með markatöluna 40:1!
Núverandi meistarar í Wolfsburg eru fimm stigum á eftir Bayern í augnablikinu en vetrarfrí er í deildinni þar til í febrúar. Sveindís Jane Jónsdóttir gekk til liðs við Wolfsburg á dögunum en hún mun vera á láni hjá Kristianstad í Svíþjóð á næsta ári.
Hin 19 ára gamla Karólína varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í sumar og kom inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins í undankeppni EM.
Karólína hefur skorað 32 mörk í 88 leikjum með Breiðabliki síðan hún kom til félagsins frá FH fyrir þremur árum.
Hún hefur á þeim tíma unnið tvo Íslandsmeistaratitla, bikarmeistaratitil og farið með liðinu í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir