Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. janúar 2021 20:24
Brynjar Ingi Erluson
Marco Giampaolo rekinn frá Torino (Staðfest)
Marco GIampaolo var látinn fara frá Torino
Marco GIampaolo var látinn fara frá Torino
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Torino er búið að reka Marco Giampaolo, þjálfara liðsins, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Torino gerði markalaust jafntefli við Spezia um helgina og fyllti það mælinn hjá stjórninni.

Liðið hefur ekki riðið feitum hesti á þessari leiktíð og er í 18. sæti með aðeins 13 stig.

Torino er þá úr leik í ítalska bikarnum eftir að hafa tapað fyrir Milan á dögunum.

Giampaolo var því látinn taka poka sinn í dag en Davide Nicola er líklegastur til að taka við keflinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner