Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 18. janúar 2021 18:23
Brynjar Ingi Erluson
Sindri til Kórdrengja (Staðfest) - Davíð framlengir
Davíð Þór verður áfram hjá Kórdrengjum
Davíð Þór verður áfram hjá Kórdrengjum
Mynd: Hulda Margrét
Kórdrengir hafa styrkt markvarðarstöðuna fyrir komandi tímabil en Sindri Snær Vilhjálmsson er kominn til félagsins frá Breiðabliki. Þá hefur Davíð Þór Ásbjörnsson framlengt samning sinn við Kórdrengi.

Sindri Snær er fæddur árið 2002 og hefur spilað með Blikum frá 2017 en hann kom til félagsins frá FH.

Breiðablik lánaði hann í Augnablik síðasta sumar og lék hann níu leiki með liðinu í 3. deildinni auk þess sem hann spilaði einn leik í bikarnum.

Hann er nú genginn í raðir Kórdrengja og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Þá hafa Kórdrengir framlengt við Davíð Þór Ásbjörnsson en hann hefur reynst liðinu afar mikilvægur og verður áfram partur af uppbyggingunni sem á sér stað hjá félaginu.

Davíð er uppalinn í Fylki og á 15 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands en hann getur leyst fjölmargar stöður á vellinum. Hann spilaði 15 leiki og skoraði 5 mörk er Kórdrengir unnu 2. deildina á síðustu leiktið.
Athugasemdir
banner
banner