Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. janúar 2023 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Bamford með tvö mörk í öruggum sigri
Mynd: EPA
Leeds 5 - 2 Cardiff City
1-0 Wilfried Gnonto ('1 )
2-0 Rodrigo ('34 )
3-0 Wilfried Gnonto ('36 )
4-0 Patrick Bamford ('71 )
5-0 Patrick Bamford ('76 )
5-1 Callum Robinson ('84 )
5-2 Callum Robinson ('90 , víti)

Leeds United var ekki í neinum vandræðum með Cardiff í endurteknum leik í enska bikarnum í kvöld. Liðin skildu jöfn 2-2 í Wales.

Cardiff sá hins vegar aldrei til sólar í kvöld. Wilfried Gnoto skoraði fyrsta mark leiksins á fyrstu mínútu leiksins með stórkostlegu skoti.

Þegar um 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma í fyrri hálfleik tvöfaldaði Rodrigo forystuna og aðeins tveimur mínútum síðar bætti Gnoto við öðru marki sínu og þriðja marki Leeds.

Patrick Bamford kom inn á í síðari hálfleik og bætti tveimur mörkum við áður en leiknum lauk. Callum Robinson klóraði í bakkann fyrir Cardiff með tveimur mörkum undir lok leiksins.

Þetta var fyrsti leikur Bamford í tæpa þrjá mánuði en hann hefur verið að berjast mikið við meiðsli á þessari leiktíð.

Leeds mætir annað hvort Boreham Wood eða Accrington sem mætast í endurteknum leik þann 24. janúar.


Athugasemdir
banner
banner