Fotbolti.net
18.01.24 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðjón Orri yfirgefur ÍBV

Guðjón Orri yfirgefur ÍBV
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Orri Sigurjónsson varð samningslaus eftir að síðasta tímabil kláraðist. Hann var að klára tveggja ára samning hjá ÍBV.

Markmaðurinn missti af öllu síðasta tímabili þar sem hann þurfti að fara í aðgerð vegna meiðsla fyrir tímabilið.

Hann er orðinn heill heilsu en er án félags sem stendur. Fótbolti.net hefur fengið það staðfest að Guðjón Orri verður ekki áfram hjá ÍBV.
Guðjón Orri missir af öllu tímabilinu - „Hefði þurft að fara í aðgerð síðasta sumar"
TENGT EFNI

Guðjón Orri missir af öllu tímabilinu - „Hefði þurft að fara í aðgerð síðasta sumar"

Guðjón Orri er 31 árs og hefur leikið með KFS, ÍBV, Stjörnunni, Selfossi og KR á sínum ferli. Á sínum tíma lék hann einn leik með U21 landsliðinu.

Alls á hann að baki 51 leik í efstu deild, átján af þeim komu sumarið 2022 þegar ÍBV endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.