Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   lau 18. janúar 2025 20:23
Elvar Geir Magnússon
Arteta: Varnarleikur okkar óboðlegur í mörkum Villa
Liverpool styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í dag, vann Brentford áður en Arsenal missti niður tveggja marka forystu og gerði 2-2 jafntefli gegn Aston Villa.

Arsenal var með mikla yfirburði lengi vel í leiknum en missti tökin. Liðið er nú sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða.

„Ég er stoltur af spilamennskunni og hvernig strákarnir léku í þriðja leik sínum á sex dögum. Við vorum með yfirburði, mínir menn voru framúrskarandi og áttum klárlega skilið að vinna," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

„Hvernig við vörðumst í þessum tveimur mörkum hjá Aston Villa er hinvegar óboðlegt. Þetta á ekki að sjást í þessum leik. Þetta var okkar besta frammistaða gegn Villa síðan ég tók við. Eftir allt sem við gerðum þá getum við ekki boðið upp á það að fá á okkur svona mörk. Það er svo stutt á milli. Ég er stoltur en samt svo svekktur."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner