Í kvöld hefjast 16-liða úrslitin í Meistaradeildinni. Hlé hefur verið í deildinni frá því riðlakeppninni lauk í desember.
Báðir leikirnir hefjast klukkan 20:00 og má með sanni segja að ekki sé um neina slor leiki að ræða. Í Dortmund fá heimamenn Frakklandsmeistarana í PSG í heimsókn.
Dortmund lenti í öðru sæti í sínum riðli á meðan PSG sigraði sinn riðil. Þá mæta tilvonandi Englandsmeistarar og núverandi Evrópumeistarar í Liverpool liði Atletico í Madrid.

Báðir þessir leikir eru í beinni útsendingu á rásum Stöð 2 Sport.
Meistaradeildin - 16-liða úrslit, fyrri leikur
20:00 Dortmund - PSG
20:00 Atletico Madrid - Liverpool
Athugasemdir