Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. febrúar 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Coman ætlar ekki að fara í sumar þrátt fyrir áhuga Man Utd
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Kingsley Coman ætlar ekki að fara frá Bayern Munchen í sumar þrátt fyrir áhuga frá Manchester United.

Coman á ennþá tvö og hálft ár eftir af samningi sínum.

Fréttir í Þýskalandi segja að Manchester United sé tilbúið að greiða Coman 250 þúsund pund í laun á viku.

Hinn 24 ára gamli Coman ætlar hins vegar ekki að fara frá Bayern í sumar að sögn Sky.

Leikmaðurinn hefur hins vegar áhuga á að spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni síðar á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner