Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. febrúar 2021 08:30
Victor Pálsson
Giroud hrósar Kepa - Alltaf tilbúinn
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud, leikmaður Chelsea, hefur hrósað markmanninum Kepa sem byrjaði síðasta leik er liðið vann Newcastle 2-0.

Kepa hefur verið í kuldanum allt þetta tímabil en gæti unnið sér inn byrjunarliðssæti eftir komu Thomas Tuchel sem tók við af Frank Lampard.

Kepa átti fínan leik í sigri Chelsea en hann var harðlega gagnrýndur fyrir eigin frammistöðu á síðustu leiktíð.

„Ég er ánægður fyrir hans hönd. Hann hefur verið einbeittur og ákveðinn í því sem hann þarf að gera," sagði Giroud.

„Hann leggur sig fram á hverjum degi á æfingasvæðinu svo hann verði klár þegar stjórinn þarf á honum að halda. Hann spilaði mjög vel eins og liðið."
Athugasemdir
banner
banner