Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 18. mars 2021 07:30
Aksentije Milisic
Flick og Bayern setja met
Mynd: Getty Images
Bayern fór örugglega áfram í Meistaradeild Evrópu í gær en liðið vann Lazio á heimavelli með tveimur mörkum gegn einu.

Fyrri leik liðanna lauk með 1-4 sigri Bayern í Róm og því var einvígið svo gott sem búið fyrir leikinn í kvöld.

Hansi Flick hefur gert magnaða hluti með þetta Bayern lið síðan hann tók við. Með sigrinum í gær bætti hann met og þá bætti Bayern liðið einnig met.

Flick er nú fyrsti þjálfarinn í sögu Meistaradeildar Evrópu sem vinnur alla fyrstu sjö leiki sína í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Magnaðar tölur.

Bayern liðið hins vegar hefur nú komist í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar 19 sinnum. Ekkert lið hefur komist jafn oft á þetta stig keppninar í sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner