Fotbolti.net
18.03.23 - 13:40
Aksentije Milisic

Conte hefur trú á því að Kane verði áfram nái Spurs topp fjórum

Conte hefur trú á því að Kane verði áfram nái Spurs topp fjórum
Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, stjóri Tottenham Hotspur, hefur trú á því að Harry Kane verði hjá félaginu út ferilinn.

Kane verður þrítugur í sumar en hann mun eiga eitt tímabil eftir á samningi sínum þegar þessu tímabili lýkur. Conte reyndi að fá félagið í að framlengja samning hans síðasta sumar en Kane sagði í janúar mánuði að það væru ekki miklar viðræður í gangi.

Conte hefur trú á því að ef Tottenham nái topp fjórum og komist í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð þá verði Kane áfram. Tottenham mætir fallbaráttuliði Southampton í mikilvægum leik í deildinni í dag.

„Það er mikilvægt fyrir alla að ná topp fjórum. Fyrir félagið, leikmennina, þjálfarana, stuðningsmennina, starfsliðið. Það verður allt auðveldara og einfaldara ef félagið kemst í Meistaradeildina á ný," sagði Ítalinn.

„Bestu leikmennirnir vilja spila í þessari keppni. Við sjáum hvað gerist eftir tímabilið."

Framtíð Conte hjá Tottenham er í óvissu en margir halda að hann muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.