Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. apríl 2021 09:00
Victor Pálsson
Bruce vonast til að halda Willock
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, vill halda Joe Willock hjá félaginu á næstu leiktíð eftir flotta frammistöðu síðan í janúar.

Willock var lánaður til Newcastle frá Arsenal og er lykilmaður undir Bruce á St. James' Park.

Willock er 21 árs gamall og tryggði Newcastle mikilvægan 3-2 sigur á West Ham á laugardaginn.

Arsenal gæti viljað fá Willock aftur í sumar en hann náði þó ekki að festa sig í sessi á miðju liðsins.

„Við myndum elska það að halda honum hér. Hann er leikmaður sem þú vilt byggja upp lið í kringum," sagði Bruce.

„Hvort það sé möguleiki fyrir okkur eða ekki veit ég ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner