Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. maí 2020 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Florentin Pogba til Sochaux (Staðfest)
Florentin við hlið Paul.
Florentin við hlið Paul.
Mynd: Getty Images
Florentin Pogba, annar af tveimur eldri bræðrum Paul Pogba, er genginn í raðir franska frálgsins Sochaux frá Atlanta United í MLS-deildinni. Florentin og Mathias eru tvíburar og er yngri bróðir þeirra Paul Pogba,
leikmaður Manchester United.

Florentin mun því leika í næstefstu deild í Frakklandi á komandi leiktíð. Hann skrifaði undir þriggja ára samning og staðfesti Sochaux félagaskiptin í dag.

Varnarmaðurinn, sem er landsliðsmaður Gíneu, kemur á frjálsri sölu. Hann fór frá Saint-Etienne til Genclerbirligi í janúar 2018 og lék þar átta leiki. Í febrúar 2019 gekk hann í raðir Atlanta og skrifaði undir eins árs samning.

Hjá Genclerbirligi lenti hann upp á kant við liðsfélaga sína þegar hann gekk meiddur af velli eftir að allar þrjár skiptingar liðsins höfðu verið nýttar. Liðsfélagarnir skildu ekkert í þessu en liðið var að tapa leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner