18.06.17 - 17:37
Arnar Helgi Magnússon
Viðar Jóns: Gott að koma hingað og vera svekktur með tap
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Jónsson þjálfari Leiknir F. var svekktur að hafa ekkert fengið út úr viðureigninni við Selfoss í Inkassodeildinni í dag. Liðið fékk mörg færi til þess að skora en nýttu sér það ekki.
„Ég er alveg drullusvekktur. Mér fannst við bara vera betra liðið í dag, þeir áttu kannski 20 mínútna kafla og við áttum svoleiðis dauðafæri eftir dauðafæri og ég bara skil ekki hvernig við fórum ekki að því að skora. Það er samt gott að koma hingað og vera svekktur með tap, svona er fótboltinn. Þeir fengu þarna eitt skot og refsuðu.\"
„Við getum unnið alla ef við erum að spila eins og við gerðum þarna í 60-70 mínútur af þessum leik og byggja ofan á það.\"
„Ég hleypti þessu aðeins upp síðasta korterið. Við vorum komnir 2-0 undir og tók smá séns. Þeir fengu alveg færi þarna í lokin og það var viðbúið þegar maður tekur sénsa í endann en eins og ég segi þá eru fullt af jákvæðum hlutum.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan. Við biðjumst velvirðingar á lélegum hljóðgæðum í myndklippunni.