Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 18. júlí 2021 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Tvö mörk á síðustu tíu í jafntefli
Hamar náði í stig á heimavelli gegn liðinu sem er í öðru sæti.
Hamar náði í stig á heimavelli gegn liðinu sem er í öðru sæti.
Mynd: Aðsend
Hamar 1 - 1 Völsungur
1-0 Karen Inga Bergsdóttir ('81)
1-1 Sarah Catherine Elnicky ('90)

Niðurstaðan var jafntefli þegar Hamar og Völsungur áttust við í 2. deild kvenna í dag.

Þetta var eini leikur dagsins í deildinni, en staðan var markalaus þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Hamar tók forystuna á 81. mínútu leiksins. Markið skoraði Karen Inga Bergsdóttir og það stefndi í sigur Hamars. Sarah Catherine Elnicky kom hins vegar í veg fyrir það þegar hún jafnaði metin á 90. mínútu.

Lokatölur 1-1 í þessum lið og taka bæði lið eitt stig. Völsungur er í öðru sæti, tveimur stigum frá toppnum og Hamar er í áttunda sæti með níu stig.
Athugasemdir
banner