Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 18. júlí 2021 09:00
Victor Pálsson
Arteta á von á nýjum leikmönnum
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, á von á nýjum andlitum til félagsins á næstu dögum og vikum.

Arteta staðfesti þetta í gær eftir leik Arsenal og Rangers sem lauk með 2-2 jafntefli en um var að ræða vináttuleik.

Ben White er á leið til Arsenal frá Brighton en hann mun kosta það fyrrnefnda 50 milljónir punda.

Fleiri leikmenn gætu svo verið á leiðinni miðað við orð Arteta í gær.

„Við höfum æft stíft, spilað tvo leiki og nú erum við á leið til Bandaríkjanna," sagði Arteta.

„Það hefur enginn meiðst sem er mjög jákvætt fyrir fyrstu vikuna. Við munum örugglega fá inn ný andlit bráðlega svo þetta er allt mjög jákvætt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner