Fotbolti.net
18.07.23 - 23:01
Þorsteinn Haukur Harðarson

Kjartan Henry: Ef þeir vilja gefa mér skjöld geta þeir sent mér hann

Auglýsing
Kjartan Henry

Kjartan Henry

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

"Ég væri að ljúga því ef ég segði að það hafi ekki verið skrítið að labba hérna inn í gestaklefann fyrir leikinn en þegar maður var byrjaður að spila leikinn þá gleymdi maður þessu," sagði Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður FH, eftir 1-0 tap gegn KR, uppeldisfélagi Kjartans í kvöld.

"Það var gaman að spila þennan leik en ótrúlega fúlt hvernig hann endaði. Þetta er bara búið og við þurfum að fókusa á næsta leik."

Athygli vakti að KR ætlaði að heiðra Kjartan Henry fyrir vel unnin störf fyrir leikinn. Kjartan afþakkaði það hinsvegar.

"Þetta er svolítil einföldun. Ég var að hita upp og einbeita mér að leiknum og svo er hnippt í mig fimm mínútum fyrir leik og mér sagt að það ætti að heiðra mig fyrir leik.  Ég sagði bara að ef þeir vilja gefa mér einhvern skjöld þá bý ég hérna á Meistaravöllum og þeir geta bara sent mér hann. Ég var að einbeita mér að leiknum og hefði viljað fá smá fyrirvara á þessu. Þetta var ekkert meira en það. Ekkert stórmál en þið munuð eflaust reyna að blása þetta upp."

Þegar Kjartani var skipt útaf í leiknum sungu stuðningsmenn KR lag sem reglulega var sungið um hann þegar hann var leikmaður liðsins.

"Það er mikil saga og ég er alinn upp hjá KR. Núna líður mér svakalega vel hjá FH og ég er þakklátur fyrir að ég fái að gefa af mér og spila leiki þar. Mér þótti vænt um þetta en börnunum mínum sem æfa hjá KR þótti örugglega vænna um það."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.