KR ætlaði að heiðra Kjartan Henry en skyndilega var hætt við það


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Undarlegir atburðir áttu sér stað fyrir leik KR og FH sem eigast nú við í Bestu deildinni.
Kjatan Henry Finnbogason er í byrjunarliði FH en hann gekk til liðs við félagið frá KR fyrir tímabilið eftir erfiðan tíma hjá uppeldisfélaginu á síðustu leiktíð. Mikið fjaðrafok var í kringum viðskilnað hans við KR.
KR ætlaði að heiðra leikmanninn fyrir leikinn í dag og var búið að skipuleggja mikla athöfn í kringum það en KR hætti við athöfnina á síðustu stundu.
„KR ætlaði að heiðra Kjartan Henry með viðurkenningarplatta fyrir leikinn. Það var búið að skrifa ræðu fyrir vallarþulinn. Svo kemur formaður KR í blaðamannastúkuna 5 mínútum fyrir leik og segir að KR sé hætt við. Hljómar eins og eitthvað stirt sé á milli," skrifaði Þorsteinn Haukur Harðarson í textalýsinguna á Fótbolta.net.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net haðneitaði Kjartan að taka við viðurkenningunni.
Kjartan spilaði sinn fyrsta leik fyrir KR í efstu deild árið 2003. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með félaginu og þrisvar bikarmeistari.




