Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 18. ágúst 2013 18:50
Jóhann Óli Eiðsson
Spánn: Barcelona lék sér að Levante
Neymar í leiknum í dag
Neymar í leiknum í dag
Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildin hófst um helgina og í dag léku meistarar Barcelona sinn fyrsta leik. Óhætt er að fullyrða að sigur þeirra hafi aldrei verið í hættu.

Strax á þriðju mínútu hafði Alexis Sanschez skorað fyrsta markið og tæpum tíu mínútum síðar var Lionel Messi kominn á blað. Dani Alves og Pedro Rodriguez skoruðu áður en Messi bætti marki við á markamínútunni. Xavi skoraði sjötta mark heimamanna áður en fyrri hálfleik lauk.

Meistararnir létu sér nægja að skora aðeins eitt mark í síðari hálfleik en það var annað mark Pedro Rodriguez. Ágætis úrslit í fyrsta leik Gerardo Martino sem þjálfara Börsunga.

Brasilíumaðurinn Neymar lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Barcelona í kvöld en hann kom inn á á 63. mínútu fyrir Alexis Sanchez en uppskar aðeins gult spjald.

Barcelona 7 - 0 Levante
1-0 Alexis Sanchez ('3 )
2-0 Lionel Andres Messi ('12 )
3-0 Dani Alves ('24 )
4-0 Pedro Rodriguez ('26 )
5-0 Lionel Andres Messi ('43 )
6-0 Xavi ('45 )
7-0 Pedro Rodriguez ('73 )

Athugasemdir
banner
banner