Fotbolti.net
18.08.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland í dag - Union Berlin byrjar á erfiðum heimaleik

Union Berlin spilar í Búndeslígunni í fyrsta sinn.

Union Berlin spilar í Búndeslígunni í fyrsta sinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Eintracht Frankfurt tekur á móti Hoffenheim í fyrri leik dagsins í efstu deild þýska boltans.
Um spennandi slag er að ræða þar sem bæði lið hafa verið í bullandi Evrópubaráttu undanfarin ár. Hoffenheim hefur komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og þá fór Frankfurt alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar í vor.

Bæði lið eru búin að bæta leikmönnum við sig í sumar og stuðningsmenn spenntir fyrir að sjá liðin mæta til leiks í Búndeslígunni.

Í seinni leik dagsins og síðasta leik fyrstu umferðar eiga nýliðar Union Berlin heimaleik gegn RB Leipzig.

Það verður ansi erfiður leikur fyrir nýliðanna enda hefur Leipzig verið meðal sterkustu liða deildarinnar undanfarin ár.

Leikir dagsins:
13:30 Eintracht Frankfurt - Hoffenheim
16:00 Union Berlin - RB Leipzig

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern7+1917
2Dortmund7+817
3Freiburg7+713
4Leverkusen7+413
5Elversberg8013
6RB Leipzig7+912
7Werder7+112
8Mainz8010
9Augsburg7+49
10Hoffenheim709
11Hamburger7-109
12Köln7-38
13Paderborn7-38
14Frankfurt7-78
15Stuttgart7-36
16Schalke 047-36
17Union Berlin7-126
18Gladbach7-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.