Fotbolti.net
18.08.20 - 12:03
Magnús Már Einarsson

Íþróttastjóri Lazio reiður - Ber ekki virðingu fyrir David Silva

David Silva.

David Silva.

Canon

Mynd: Getty Images

David Silva, fyrrum miðjumaður Manchester City, skrifaði í gær undir tveggja ára samning hjá Real Sociedad á Spáni.

Lítil gleði er hjá forráðamönnum Lazio eftir félagaskiptin en Silva var við það að skrifa undir hjá ítalska félaginu á dögunum.
Sky Sport Italia segir að Lazio hafi verið búið að ná samkomulagi við Silva um þriggja ára samning en leikmaðurinn hafi allt í einu hætt við og ákveðið að fara heim til Spánar.

Sagt er að skyndilega hafi David Silva hætt að svara símtölum frá Lazio fyrir örfáum dögum. Félagið hafi svo komist að því að hann hefði skrifað undir hjá Real Sociedad þegar spænska félagið tilkynnti það.

„Ég frétti af félagaskiptum David Silva til Real Sociedad. Ég ber mikla virðingu fyrir leikmanninum en ekki fyrir manneskjunni," sagði Igli Tare, yfirmaður íþróttamála hjá Lazio, reiður í stuttri yfirlýsingu í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.