Ragnar stýrir Fram út tímabilið (Staðfest) - Igor Bjarni verður aðstoðarþjálfari

Ragnar Sigurðsson stýrir Fram út tímabilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Igor Bjarni Kostic verður aðstoðarmaður Ragnars

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Ragnar Sigurðsson mun stýra Fram út þetta tímabil en þetta staðfesti knattspyrnudeild félagsins í kvöld. Igor Bjarni Kostic mun vera honum til halds og trausts á hliðarlínunni.
Ragnar var aðstoðarmaður Jóns Þóris Sveinssonar á tímabilinu en hann tók við til bráðabirgða eftir að Jón Þórir var látinn fara í síðasta mánuði.
Hann hefur stýrt síðustu tveimur leikjum liðsins og eru Framarar ánægðir með hans störf og hefur því verið ákveðið að hann klári tímabilið.
Igor Bjarni Kostic kemur inn í þjálfarateymið og verður aðstoðarmaður Ragnars, en hann var síðast við störf hjá KA á Akureyri.
Aðalsteinn Aðalsteinsson og Daníel Traustason verða áfram í þjálfarateymi Fram og þá er Daði Lárusson áfram markvarðarþjálfari. Óskar Smári Haraldsson verður leikgreinandi í teyminu.
Fram er í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar með 15 stig þegar þrír leikir eru eftir áður en deildinni verður skipt í tvo hluta.
Tilkynning Fram:
„Ákveðið hefur verið að Ragnar Sigurðsson mun stýra liðinu út tímabilið.
Undanfarnar vikur hefur nýtt teymi komið inn af krafti auk þess sem leikmannahópurinn hefur brugðist vel við þeim krefjandi aðstæðum sem liðið er í. Hefur hvoru tveggja skilað sér og sýnt sig í vaxandi leik liðsins. Þessi batamerki á leik og anda liðsins gera það að verkum að við lítum svo á að liðið sé á réttri leið undir stjórn Ragnars.
Honum til aðstoðar hefur Igor Bjarni Kostic verið ráðinn til starfa hjá FRAM og bjóðum við hann hjartanlega velkominn.
Igor starfaði síðast hjá KA, þar sem hann var í þjálfarateymi meistaraflokks auk þess að sinna afreksstarfi félagsins. Áður en að leiðin lá norður, þá stýrði hann meistarafokksliði karla hjá Haukum í tvö ár og leiddi þar afreksþjálfun félagsins. Þar áður starfaði Igor hjá norska knattspyrnusambandinu og á árunum 2015-2019 var hann yfirmaður akademíunnar hjá Ullensaker/Kisa í Noregi.
Aðalsteinn Aðalsteinsson og Daníel Traustason verða áfram til aðstoðar á æfingum og í þjálfarateymi liðsins. Daði Lárusson verður markvarðaþjálfari sem fyrr og mun Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðsins taka að sér hlutverk í leikgreiningu. IH styrkur sinnir gagnagreiningu og styrktarþjálfun liðsins áfram.“