Spalletti er nýr landsliðsþjálfari Ítalíu (Staðfest)

Luciano Spalletti

Mynd: Getty Images

Luciano Spalletti

Mynd: Getty Images
Luciano Spalletti er nýr þjálfari ítalska karlalandsliðsins en þetta tilkynnti fótboltasambandið í dag.
Spalletti tekur við keflinu af Roberto Mancini sem sagði starfi sínu lausu á dögunum.
Mancini stýrði ítalska liðinu til sigurs á Evrópumótinu á Englandi fyrir tveimur árum en hætti óvænt með liðið, aðeins tiu mánuðum fyrir næsta Evrópumót.
Sambandið var ekki lengi að finna arftaka hans en Spalletti var í dag ráðinn nýr þjálfari liðsins.
Hann gerði Napoli að Ítalíumeisturum á síðasta tímabili, í fyrsta sinn í 33 ár, en hætti með liðið eftir tímabilið. Hann þjálfaði áður félög á borð við Inter, Roma, Udinese og Zenit.
Spalletti mun formlega taka við liðinu 1. september og verður fyrsti leikur hans gegn Norður-Makedóníu í undankeppni EM en sá leikur er 9. september.