Fotbolti.net
18.10.23 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson

Dramatík í riðli Breiðabliks - „Þetta er óásættanlegt“

Zorya í leik gegn Blikum

Zorya í leik gegn Blikum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úkraínska félagið Zorya Luhanks hefur hafnað beiðni ísraelska félagsins Maccabi Tel Aviv um að fresta leik liðanna í næstu viku, en liðin leika bæði í B-riðli með Breiðabliki og Gent.
Maccabi Tel Aviv fór fram á að fresta leiknum fram í nóvember vegna ástandsins í landinu.

Hryðjuverkasamtök Hamas gerðu ofsafengna eldflaugaárás á Ísrael í byrjun október og hafa harðir bardagar geisað síðan. Fjölmiðlar tala um að vel yfir þúsund manns að minnsta kosti hafi látist.

Því fór Maccabi fram á frestun, en Zorya, sem hefur þó mikla samúð í garð Ísraels, hafnaði beiðninni, en er reiðubúið til að spila á hlutlausum velli.

„Zorya Luhank sýnir ástandinu í Ísrael mikinn skilning og sérstaklega þegar það varðar stríð og aðgerðir hryðjuverkamanna sem leiðir að dauðsföllum fólks, en þrátt fyrir það þá er gott að muna það að stríð hefur geisað í okkar landi í næstum tíu ár og hefur fólkið, stuðningsmennirnir og liðið gengið í gegnum margt. Við þurftum að yfirgefa heimili okkar, hefja lífið upp á nýtt og halda áfram að berjast.“

„Þrátt fyrir erfiða tíma hefur Zorya Luhansk aldrei beðið um frestun Evrópuleikja og haldið áfram að spila. Zorya hefur boðist til þess að skiptast á heimaleikjum við Maccabi til að hjálpa andstæðingnum að skipuleggja heimaleikinn á Lublin-leikvanginum og þá er Zorya meira en tilbúið til þess að leyfa andstæðingnum að velja í hvaða landi heimaleikurinn fer fram, en Maccabi vill fresta leiknum fram í nóvember.“

„Zorya er með mjög flókna dagskrá í nóvember. Fyrir utan Evrópuleikina er leikur í úkraínska bikarnum í Odesa og þá bíða okkar leikir í deildinni. Því teljum við óásættanlegt að fresta leiknum og vanrækja þannig keppnisleiki sem fara fram í Úkraínu, því ekki má gleyma að landið okkar er einnig í stríði og að berjast fyrir sjálfstæði sínu.

„Við erum klárir í að spila fótbolta og gera það samkvæmt regluverki og dagatali UEFA og innanlands mótum,“
segir í yfirlýsingu Zorya.

Leikurinn á að fara fram þann 26. október á heimavelli Maccabi en á sama tíma mætir Breiðablik liði Gent frá Belgíu.
Maccabi Tel Aviv vill fresta leiknum

Maccabi Tel Aviv vill fresta leiknum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.