Nunez fór illa með Brasilíu - Messi bætti enn eitt metið


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Úrúgvæ fór upp fyrir Brasilíu í 2. sætið í undankeppni HM eftir sigur á Brössum í nótt.
Darwin Nunez framherji Liverpool kom Úrúgvæ yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði með hörku skalla.
Brasilía varð fyrir miklu áfalli í uppbótatíma fyrri hálfleiks þegar Neymar fór af velli vegna meiðsla og virtist sárþjáður. Nicolas de La Cruz gulltryggði Úrúgvæ 2-0 sigur þegar hann skoraði eftir undirbúning Nunez.
Lionel Messi var hetja Argentínu þegar liðið lagði Perú.
Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri en hann er markahæsti leikmaðurinn í undankeppni HM í Suður Ameríku í sögunni með 31 mark en Luis Suarez er með 29 mörk.





