Fotbolti.net
18.10.23 - 17:55
Brynjar Ingi Erluson

Zinchenko sendi Mudryk aðvörun - „Ríf af þér eistun ef þú reynir þetta á laugardag“

Zinchenko sendi Mudryk aðvörun - „Ríf af þér eistun ef þú reynir þetta á laugardag“
Canon

Mynd: Getty Images

Oleksandr Zinchenko, leikmaður Arsenal og úkraínska landsliðsins, hefur sent landa sínum, Mykhailo Mudryk, aðvörun fyrir leik Arsenal og Chelsea um helgina.
Mudryk hefur átt erfitt uppdráttar hjá Chelsea síðan hann samdi við félagið í janúar, en hann er allur að koma til.

Hann spilaði frábærlega í 3-1 sigri Úkraínu á Möltu í undankeppni Evrópumótsins á dögunum og hefur Zinchenko nú áhyggjur af því að hann sé kominn í fantaform.

„Ég sagði við hann að ef reynir eða gerir þetta á laugardag þá mun ég rífa eistun af honum,“ sagði Zinchenko eftir leikinn.

„En það mikilvægasta var að ná í þrjú stig. Ég er ánægður fyrir bæði hann og landsliðið. Markið hans var mikilvægt því það færði meiri ró í leikinn,“ sagði hann í lokin.

Chelsea og Arsenal mætast á Stamford Bridge á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.