Cristiano Ronaldo er aðeins einu marki frá því að skora sitt 100. landsliðsmark frá Portúgal.
Hann gerði mark númer 99 þegar Evrópumeistararnir unnu Lúxemborg 2-0 og tryggðu sér sæti á EM 2020.
Sjá einnig:
Ronaldo lærði af Ramsey - Stal marki af Jota
Hinn 34 ára gamli Ronaldo er kominn með 99 landsliðsmörk í 164 landsleikjum.
Hann gæti orðið einungis annar leikmaðurinn í sögunni til að skora meira en 100 mörk með landsliði á eftir Ali Daei sem skoraði 109 mörk með landsliði Íran á sínum tíma.
Hann þarf að bíða þangað til á næsta ári til að fara yfir 100 mörkin. Næsti landsliðsgluggi er í mars.
Athugasemdir