Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. nóvember 2020 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Balotelli sagður í viðræðum við Barnsley
Mario Balotelli á leið til Englands?
Mario Balotelli á leið til Englands?
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Mario Balotelli er í viðræðum við enska B-deildarfélagið Barnsley en þetta kemur fram í enskum blöðunum í dag.

Þessi 30 ára gamli leikmaður hefur verið án félags síðan í sumar er samningur hans við Brescia rann út.

Hann byrjaði ágætlega hjá Brescia en var þó ítrekað að koma sér í vandræði undir lokin og hætti að mæta á æfingar eða gerði sér upp veikindi.

Samkvæmt Sun er Balotelli í viðræðum við enska B-deildarfélagið Barnsley en það kemur afar mikið á óvart og er þetta félag í aðstæðum sem Balotelli er óvanur.

Barnsley er í fallbaráttusvæði í B-deildinni en hann er þó sagður afar áhugasamur að snúa aftur til Englands eftir að hafa spilað með bæði Liverpool og Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner