Fotbolti.net
18.12.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Hver er Japaninn sem Liverpool er að kaupa?

Takumi Minamino.

Takumi Minamino.

Canon

Mynd: Getty Images

Japanski miðjumaðurinn Takumi Minamino er á leið til Liverpool í janúar en hann fer í læknisskoðun hjá félaginu í dag. Minamino er með riftunarverð upp á 7,25 milljónir punda í samningi sínum og því er Liverpool að fá hann á góðu verði.

Minamino hefur leikið með Red Bull Salzburg í Austurríki síðan árið 2015 en hann kostaði félagið innan við eina milljón punda þegar hann kom frá Cerezo Osaka.

Sky Sports birtir í dag grein þar sem hinn 24 ára gamli Minamino er kynntur til sögunnar.

Minamino skoraði og lagði upp mark fyrir Salzburg í 4-3 tapi liðsins gegn Liverpool á Anfield í október. Minamino skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú í riðlakeppninni í Meistaradeildinni en í úrvalsdeildinni í Austurríki hefur hann skorað fimm mörk og lagt upp sex í ellefu byrjunarliðsleikjum á tímabilinu.
Minamino verður fimmti leikmaðurinn sem Liverpool fær úr smiðju Ralf Rangnick sem er yfirmaður íþróttamála hjá Red Bull en áður hafa Naby Keita, Sadio Mane, Joel Matip og Roberto Firmino komið til Liverpool eftir að hafa verið í umsjá Rangnick.

„Leikstíllinn er mjög svipaður Jurgen. Þetta er hápressa og gagnpressa. Um leið og við höfum unnið boltann viljum við ekki eyða tíma í þversendingar eða sendingar til baka," sagði Rangnic.

„Við erum að reyna að spila fram á við eins fljótt og hægt er með því að reyna að skapa færi og skora eins mörg mörk og mögulegt er."

„Það er engin tilviljun að hamm er með fjóra fyrrum leikmenn mína því hann er að leita að eins leikmönnum og ég, mönnum með sömu hæfileika og sama hugarfar."

Minamino hefur spilað framarlega á miðjunni og á kantinum hjá Salzburg á þessu tímabili en fyrr á ferli sínum spilaði hann einnig á miðri miðjunni.

Minamino hefur mikla hlaupagetu og hefur auga fyrir marki. Þá hefur hann einnig verið duglegur að skapa færi fyrir liðsfélaga sína.

Raphael Honigstein, sérfræðingur Sky, segir að ekki sé hægt að líkja leikstíl Minamino við neinn af Sadio Mane, Mohamed Salah og Roberto Firmino en hann geti leyst þá alla af hólmi.

„Núna er að koma fjórði maðurinn sem getur tekið pressuna af þessum þremur eldflaugum frammi og það gefur Jurgen Klopp tækifæri til að breyta aðeins til," sagði Honigstein.

„Ég bjóst við að Liverpool myndi reyna við Timo Werner. Hann hefði getað orðið fjórði náunginn en það gerðist ekki. Minamino er mun ódýrari en hann getur líka bætt sig meira og náð lengra."

Smelltu hér til að lesa grein Sky Sports um Minamino
Hver er Japaninn sem Liverpool er að kaupa?
Canon

Mynd: Getty Images

Hver er Japaninn sem Liverpool er að kaupa?
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.