Fotbolti.net
19.01.23 - 23:05
Brynjar Ingi Erluson

Guardiola hjólar í stuðningsmenn - „Þögðu í 45 mínútur"

Pep Guardiola

Pep Guardiola

Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, var allt annað en hress þrátt fyrir að hafa unnið Tottenham 4-2 á Etihad-leikvanginum í kvöld en hann gagnrýnir bæði leikmenn og stuðningsmenn liðsins.
Man City var tveimur mörkum undir í hálfleik og útlit fyrir að liðið væri á leið að tapa og missa Arsenal lengra frá sér í titilbaráttunni en mörkin skiluðu sér í síðari hálfleik og liðið nú fimm stigum frá Arsenal.

Eftir leikinn mætti Guardiola í viðtal og var bersýnilega óánægður með lið sitt og stuðningsmenn félagsins.

„Það vantaði kjark, ástríðu, eldinni og þessa þrá til að vinna frá fyrstu mínútu. Það sama má segja um stuðningsmenn. Þeir þögðu í 45 mínútur og ég vil fá stuðningsmennina mína aftur,“ sagði Guardiola.

„ Ég þekkti ekki liðið mitt á vellinum. Áður höfðu þeir þrána til þess að vinna,“ sagði hann ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.