Fotbolti.net
19.01.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ólína spilar með Fram í sumar (Staðfest)

Ólína spilar með Fram í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram - Facebook

Hertz

Ólína Sif Hilmarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, Fram og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Ólína spilaði stórt hlutverk með Fram á láni frá Fjölni síðasta sumar þegar liðið tryggði sér sigur í 2. deildinni. Hún getur leyst báðar kanntstöðurnar og einnig spilað framarlega á miðjunni.

"það er okkur sönn ánægja að Ólína Sif sé komin alfarið yfir til Fram. Ólína kom inn í liðið stuttu fyrir mót á láni frá Fjölni og átti stórgott tímabil. Hún er skemmtilegur og litríkur karakter sem okkur þjálfurum hlakkar til að halda áfram samstarfi við og vonumst við eftir áframhaldandi bætingum og frammistöðum hjá henni. Einnig viljum við koma fram þökkum til Fjölnis varðandi félagaskiptin," sagði Óskar Smári Haraldsson, annar aðalþjálfari Fram.

Ólína hefur spilað 58 leiki á ferlinum og skorað sjö mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.