Fotbolti.net
19.01.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rakel Mist í Fylki (Staðfest)

Rakel Mist í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir/Facebook

Hertz

Rakel Mist Hólmarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Rakel er 19 ára varnarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni. Hún kemur til liðsins frá Álftanesi þar sem hún spilaði 16 leiki síðasta sumar.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu." Segir í tilkynningu Fylkis.

Fylkir hafnaði í 6. sæti í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.